Um mig

Takk fyrir að kíkja inn á bloggið.

Til þess að kynna mig þá er ég 27 ára arkitektúrnemi við Listaháskóla Íslands. Ég er búsett í Reykjanesbæ, ásamt unnusta mínum og einni dóttur, en á rætur að rekja til Skagastrandar.

Í haust hóf ég Ba-nám við arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Ég kláraði fornám Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2011 og lauk diplómagráðu við tölvuleikjahönnun í Amsterdam 2015. Síðan þreifði ég aðeins fyrir mér í leikstjórn og handritsgerð við Kvikmyndaskóla Íslands en lauk því námi ekki.

En tilgangur þessa bloggs er fyrir mig að hafa vettvang til að æfa mig á: Að skrifa um arkitektúr og hönnun og þar með fræðast í leiðinni.

Vonandi eru pistlanir áhugaverðir fyrir ykkur sem stoppið við.


Með kærri kveðju,
Arís Eva.

No comments:

Post a Comment